09.05.1936
Efri deild: 71. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)

Starfslok deilda

Jónas Jónsson:

Ég vildi leyfa mér sem einn af dm. að þakka hæstv. forseta fyrir sína vinnu með okkur í vetur. Ég hygg, að það mundi vera heillavænlegt fyrir Alþ. í framtíðinni, ef jafnákjósanleg sambúð væri milli forseta og dm. eins og verið hefir á þessu þingi. Ég óska honum svo góðrar heimferðar. (Forseti: Ég þakka).