09.05.1936
Neðri deild: 71. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Þetta er síðasti fundur þessarar d. að þessu sinni. Hæstv. forseti Sþ. mun rekja sögu og afgreiðslu mála, og tel ég því óþarft að víkja nokkuð að því.

Ég vil þakka hv. þdm. fyrir einkar góða samvinnu og óska þeim allrar blessunar; utanbæjarþm. óska ég góðrar ferðar og heimkomu.