21.02.1936
Neðri deild: 5. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (2140)
17. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Flm. (Páll Þorbjörnsson):
Við flm. þessa frv. fluttum shlj. frv. þessu á síðasta þingi, en það varð ekki útrætt. Flytjum við það nú aftur óbreytt.
Þetta mál er svo kunnugt þessari d. og Alþingi yfir höfuð frá umr., sem um það hafa orðið á undanförnum þingum, að ég tel ástæðulaust að fjölyrða um það nú. Skal ég aðeins taka það fram, að sú rýmkun, sem farið er fram á í þessu frv., er að verða meiri og meiri nauðsyn, eftir því sem árin líða. Eins og kunnugt er, er sá fiskur, sem hér er um að ræða, að fiskist í þetta veiðarfæri, sá verðmætasti, sem fæst hér við land, en samkv. gildandi l. er bannað að nota þetta veiðarfæri, dragnótina, mikinn tíma ársins, og hefir það hamlað mjög þessari veiði, en hinsvegar er greiðastur markaður fyrir þennan fisk.
Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum nú, en óska, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til sjútvn.