20.03.1936
Neðri deild: 29. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í C-deild Alþingistíðinda. (2201)
60. mál, sauðfjárbaðanir
*Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen):
Í þessu máli er í rauninni aðeins eitt eftir, og það er að samþykkja frv. Hv. 2. landsk. hefir leiðrétt ummæli hv. þm. Ak. út af greininni um sundþrærnar, þar sem aðeins er tekið fram, að sundþrær skuli vera nægilega margar að dómi baðstjóra, en alls ekki á hverjum bæ. Vona ég, að túlkun hv. þm. Ak. á greininni stafi af misskilningi, en ekki öðru verra.
Út af lokaummælum hv. þm. A.-Húnv. vil ég segja það, að hann rak þar á ræðu sína sama endahnútinn og honum er ekki ótamt, með því að segja: ég sit inni með allt vitið í þessu máli, og þið vitið ekkert. Þetta er sá venjulegi endahnútur á ræðum, sem byggðar eru á gersamlegri rökleysu. En vel get ég skilið það, að hv. þm. A.-Húnv. þyki það hart, eftir að hann hefir kynt þetta þekkingarbál, hve fáir verða til að ganga á ljósið.