08.05.1936
Efri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í C-deild Alþingistíðinda. (2285)

128. mál, alþýðutryggingar

*Jón Baldvinsson:

Ég ætla aðeins að upplýsa það, að hæstv. atvmrh. er bundinn við umr. í Nd. út af fyrirspurn, sem gerð hefir verið til hans þar. En ég held, að hann hafi ýmsar aths. að gera við þetta frv., svo að ég hygg, að það hafi ekki verið fullt samkomulag um það. Frv. getur vitanlega gengið til 2. umr., en þá getur hæstv. ráðh. væntanlega verið við og gert sínar aths. við frv., þegar það verður tekið fyrir aftur.