24.02.1936
Neðri deild: 7. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (2346)
23. mál, eignarnámsheimild á Reykhólum
Páll Zóphóníasson:
Ég vildi leyfa mér að gera stutta aths. út af orðum hv. þm. V.-Sk. um það, að ég hafi í fyrra talið almenningsþörf vera til staðar og réttlæta eignarnám á landskika í Rangárvallasýslu. Ég get lýst yfir því, að ég tel það almenningsþörf, þegar um 100 manns þurfa á landi að halda.
Hinu, sem hv. þm. V.-Sk. sagði, bið ég menn að taka vel eftir, því að ég er ekki viss um, að það standi í þingtíðindunum, þegar þau verða prentuð. Í blöðum sínum hafa sjálfstæðismenn jafnan viljað eigna sér nýbýlamálið. En nú talar hv. þm. um lög um nýbýli og samvinnubyggðir, sem þeir hafa komið í gegn — það er að segja stjórnarflokkarnir. Hann lýsir hér með yfir því, að stjórnarflokkarnir hafi komið fram þessu máli. Þakka ég honum hér með fyrir yfirlýsinguna og leyfi mér að vonast eftir, að hann striki hana ekki út úr ræðunni í prentun.