26.02.1936
Neðri deild: 9. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í C-deild Alþingistíðinda. (2361)

31. mál, vegalagabreyting

Flm. (Thor Thors):

Þetta frv. miðar að því að koma í þjóðvegatölu nokkrum vegaköflum í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, og eru það allt mjög nauðsynlegir vegir. Leyfi ég mér því að vænta, að þetta mál fái greiðan framgang hér á þingi. Frv. samhljóða þessu var flutt á síðasta þingi, en náði þá ekki fram að ganga. En ég tel, að ekki verði lengur spornað við þessu máli, og leyfi mér því að vænta, að samgmn., sem væntanlega fær þetta mál, taki því vinsamlega.