28.02.1936
Neðri deild: 11. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2381)
39. mál, kaup á Bíldudalseign
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég ætla aðeins að segja örfá orð um þetta mál áður en það fer til n. Ég vil biðja þá, sem standa að þessu máli, afsökunar á því, hvað ég tala seint, en ástæðan til þess er sú, að ég hefi ekki haft tíma til þess að hlusta á umr.
Mér skilst, að inn í þessar umr. hafi blandazt till. til þál., sem er hér síðar á dagskránni. um athugun á atvinnumöguleikum á Bíldudal. Það má að vísu segja, að þessar 2 till. séu nokkuð skyldar, en þó ætla ég að halda mér að öllu leyti við þessa till., sem nú er til umr. á þskj. 43, sem sé heimild fyrir ríkisstj. til þess að kaupa Bíldudalseign.
Ég vildi þá bein því til þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar, að hugsa sig vel um áður en hún leggur með því, að þessi till. verði samþ. — Ég lít þannig á þetta mál, að eðlilegast sé eins og þarna stendur á, að það verði hreppurinn eða einhverjir þarna á staðnum, sem eignist þessa eign, en ekki ríkissjóður. Ég get ekki séð, að það sé út af fyrir sig neitt bjargráð, þó að ríkissjóður eignist þessa eign. Og ég er viss um það, að ef svo fer, eins og menn virðast álíta, að atvinnurekstur á þessum stoð gangi mjög saman, þá mun það vitanlega verða svo, að sá, sem nú á eignina, mun lenda í vandræðum með að standa í skilum með vexti af henni, og mun þá Útvegsbankinn áður en langt um líður hljóta að fá áhuga fyrir því, að einhver komist yfir eignina, sem vill gera eitthvað á staðnum, og skilst mér þá, þegar til þess kemur, að hreppurinn sé til þess líklegastur. Ég lít því svo á, að óheppilegt sé að grípa fram í þessa eðlilegu rás viðburðanna með því að ríkissjóður fari að kaupa þessa eign.
Út í önnur atriði þessa máls ætla ég ekki að fara. — Um það, hvað hægt sé að gera á þessum stað almennt, ætla ég ekki heldur að ræða. Ef til vill gefst tækifæri til þess í sambandi við þá till., sem er hér síðar á dagskránni, um atvinnumöguleika á Bíldudal.