02.03.1936
Neðri deild: 13. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

4. mál, verðtollur og bráðabirgðaverðtollur

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hefi ekki annað að segja um þetta mál en það, að n. er sammála um að leggja til, að þessir tollar verði framlengdir, og býst ég ekki við, að það geti orðið ágreiningsatriði.