03.04.1936
Neðri deild: 41. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (2585)
68. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Frsm. (Ólafur Thors):
Þm. Ísaf. sagðist sjálfur vera — og allir meðlimir félagsins — í ótakmarkaðri samábyrgð fyrir skuldum félagsins. Mér þykir þetta merkilegt og til að bæta aðstöðu hv. þm., ef rétt er, og ég ætla að treysta því, að þetta sé rétt, þótt það sé óvarlegt. En þó skil ég ekki, hvers vegna félagið hefir þá leitað til skuldaskilasjóðs, því ef þetta er tekið til greina, að þessir menn séu allir samábyrgir, þá hljóta þeir að vera svo efnum búnir, að fél. eigi langt umfram skuldir. Ég mun nú fyrst og fremst snúa mér til sjóðsstjórnarinnar og biðja um upplýsingar þær, sem að þessu lúta, og vil nú að lokum þakka hv. þm. Ísaf. fyrir að hafa veitt mér leyfi til að hafa aðgang að reikningum og skjölum Samvinnufél. Ísfirðinga, Ég tek þakksamlega á móti þessu leyfi og vona, að hv. þm. Ísaf. taki það ekki af mér aftur.