25.03.1936
Neðri deild: 33. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2681)

86. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Bjarni Ásgeirsson:

Ég held satt að segja, að þetta frv. sé óþarft, vegna þess að ákvæðin, sem það tekur yfir, eru í raun og veru dauð, og hefir ekki verið framfylgt nema um 1 eða 2 lán. Ég geri þess vegna ekki ráð fyrir, að þó þessum eina lið verði breytt, þá hafi það nokkur áhrif á lánveitingar, þar sem gjaldfrestur er veittur hvort sem er. Það er því sama, hvort frv. er samþykkt eða ekki.