17.02.1936
Efri deild: 2. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Kosning fastanefnda

Forseti (EÁrna):

Það hefir komið fram till. um, að landbn. verði skipuð 5 mönnum, og vil ég verða við ósk hv. flm. um að bera þá till. upp. Það mun vera heimilt að fjölga í n., ef það er samþ. með einföldum meiri hl. í þd., eða svo skil ég fyrirmæli þingskapanna, þar sem tekið er fram, að í nefndum megi þó ekki vera fleiri en 3 menn.