28.04.1936
Efri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í C-deild Alþingistíðinda. (2820)

30. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

Forseti (EÁrna):

Þetta mál hefir nú legið nokkuð lengi fyrir d., og vildi ég því hraða því eins og unnt er, ef Nd. vildi sinna því, svo að það gæti orðið að lögum. Ég mun þó gera það fyrir tilmæli hv. 4. þm. Reykv. að taka málið út af dagskrá til morguns.