06.04.1936
Efri deild: 46. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 569 í C-deild Alþingistíðinda. (2895)

43. mál, berklavarnir

*Magnús Jónsson:

Ég er í þeim minni hl. fjhn., sem afgreiddi frv. hv. þm. N.-Ísf. En frv. um ríkisframfærslu sjúkra manna er ekki þar, heldur í allshn. En þrátt fyrir það athugaði ég auðvitað það frv. einnig, og satt að segja fann ég ekki, að svo mjög væri um sama efni að ræða í frv., að rétt væri að tefja frv. um berklavarnir þess vegna. Því afgreiddi ég frv., og mér skildist á hv. meiri hl., að hann ætlaði líka að gera það.