20.02.1936
Efri deild: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (296)

5. mál, ríkisútgáfa námsbóka

Jónas Jónsson:

Ég er nú ekki svo laus við eigingirni eins og hv. meðnm. minn, hv. 5. landsk. Ég álít menntmn. svo vel skipaða, þar sem við erum bæði í henni, að ég tel vafasamt, að öðrum n. ólöstuðum, að betri n. fáist til að fjalla um þetta mál. Ég leggst því á móti, að því verði vísað til fjhn.