06.05.1936
Neðri deild: 64. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í C-deild Alþingistíðinda. (2983)
123. mál, klaksjóður og klakstöðvar
*Pétur Ottesen:
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta frv. Það fer ekki lengra hvort sem er en ef það kemst til nefndar.
Þetta frv. er að ýmsu leyti með þeim sömu ágöllum, sem það hafði, þegar það var borið fram á síðasta þingi. Mér virðist, að það sé óþarfi af ríkisvaldinu að blanda sér inn í þessi mál meira en gert er með l. um lax- og silungsveiði, því að þar á að styðja menn til að koma upp klakstöðvum, og það hefir þegar verið hafizt handa um þetta, og er auk þess talsverður undirbúningur víða um það, að hefja þessa starfsemi, byggða á framtaki þeirra einstöku manna, sem hafa hagsmuna að gæta í sambandi við laxveiði, svo að hér er alveg ófyrirsynju verið að seilast inn á þetta svið af ríkisvaldsins eða löggjafarvaldsins hálfu. Ég sé enga ástæðu til að vera að bjóða þetta fram frekar en þörf einstaklinganna krefur í hvert skipti, enda veit maður, að grundvöllurinn bæði undir þessu frv. og frv. í fyrra var ekki umhyggja fyrir klakinu, heldur átti að nota klakmálin til þess að skapa hæstv. stj. möguleika til að geta stundað laxveiði uppi í Laxá í Kjós. Þetta góða og þarfa mál á þá að nota til þess að fá vernd fyrir skemmtanalöngun hæstv. stj. Þetta er sú rétta lýsing á því, sem liggur til grundvallar fyrir þessu frv.
Ég skal ekki fara út í einstök atriði þessa frv. eða þær skattaálögur, sem hér er um að ræða; það gefst nægur tími til þess á næsta þingi, ef það skyldi reka upp höfuðið þá. — Ég skal svo ekki eyða frekar tíma í að ræða þetta mál, en vildi aðeins láta þessa aths. koma fram við það. áður en það fer í þá höfn, sem því er búin, a. m. k. til næsta þings.