02.05.1936
Sameinað þing: 16. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (3017)

72. mál, sjómælingar og rannsóknir fiskimiða

Sigurður Kristjánsson:

Þann 12. marz bar ég fram till. um sjómælingar og rannsókn fiskimiða, og var henni vísað til fjvn. Nú er það svo, að líkindi eru til, að helmild þurfi í fjárl., ef till. á að geta fengið afgreiðslu áður en gengið er frá fjárl. Vil ég því mælast til þess við hæstv. forseta, ef hv. fjvn. hefir ekki enn skilað áliti sínu, að hann gangi þá eftir því.