09.05.1936
Sameinað þing: 21. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í D-deild Alþingistíðinda. (3072)
138. mál, Ítalíufiskur
*Ólafur Thors:
Vegna þess, að ég er talinn meðflm. að þessari till., vil ég taka það fram, að ég tel þessa lausn málsins ekki viðunandi. Hv. þm. V.-Sk., hv. 1. Reykv. og ég samþykktum að gerast meðflm. till., til að tryggja, að hún kæmist á framfæri í þinginu, en við áskildum okkur rétt til að vera með till., sem fram kynnu að koma og lengra gengju. Ég hefði óskað eftir að geta flutt brtt., þar sem þessi 75% ábyrgð væri hækkuð og ábyrgðarheimildin færð yfir á fleiri lönd, svo sem Spán og jafnvel Portúgal. En hefi nú heyrt á undirtektum hæstv. fjmrh., að till. hv. þm. N.-Ísf. mun ekki verða samþ. Ég ætla því að bera fram brtt. um, að í stað 75% komi 90%, enda var það upphaflega till. Jóns Árnasonar, án þess að ég telji hann nokkru dómbærari um þessi mál en okkur, sem erum að ræða þau hér.
Gefst mönnum nú tækifæri á að sýna með atkv., hversu langt þeir vilja ganga í því að styðja sanngjarnar kröfur útgerðarmanna.