22.04.1936
Neðri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í D-deild Alþingistíðinda. (3133)

130. mál, símaleynd

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil leiðrétta það hjá hv. þm., að ég beri neina ábyrgð í þessu sambandi. Þetta mál heyrir undir vald lögreglustjóra. Og ég hefi ekki heyrt í þessum umr. einu sinni, sem þó eru sérkennilegar fyrir hinar miklu fullyrðingar, því haldið fram, að nokkrum manni hafi verið til miska gert með þeirri athugun á samtölum í síma, sem fór fram í sambandi við bílstjóraverkfallið í vetur.