25.04.1936
Neðri deild: 56. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (3136)
130. mál, símaleynd
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Hv. 6. þm. Reykv. telur, að póst- og símamálastjóri hafi gengið lengra en hann hafði rétt til, með því að hlíta úrskurði þeim, sem lögreglustjóri felldi um opnun nokkurra símanúmera. En þar er ég annarar skoðunar. Ég tel þvert á móti, að það hafi verið skylda hans að beygja sig fyrir úrskurði lögreglustjóra, eins og hver annar borgari. — Þá bar hv. þm. sig illa yfir því, að hann sem meðlimur í ráði því, sem síminn heyrir undir, hafi ekki fengið að sjá þennan umrædda úrskurð. Ég tel ekki aðeins, að það hafi verið rétt, heldur skylda póst- og símamálastjóra að neita að sýna úrskurðinn. Það er lögreglustjórans að kveða á um það, hvort úrskurðir skuli birtir, og í þessu efni teldi ég óheppilegt, ef úrskurðirnir væru birtir, a. m. k. með númerum þeim, sem hlustað var 1.