08.05.1936
Neðri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (3308)

116. mál, uppsögn viðskiptasamnings við Noreg

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Út af þeirri fyrirspurn, sem beint hefir verið til Framsfl. um afstöðu hans til norsku samninganna, þykir mér rétt að taka það fram, að síðast þegar þeir komu til umr. í stj., var í haust, þegar þurfti að taka afstöðu til þess, hvort samningnum skyldi sagt upp eða ekki, og þá var það einróma álit Framsfl., að samningnum skyldi ekki sagt upp. Hinsvegar hefir flokkurinn ekki tekið neina ákvörðun um það, hvort hann verði því fylgjandi að segja honum upp í næsta skipti þegar heimild er til þess. En flokkurinn mun að sjálfsögðu taka afstöðu til þess á sínum tíma.