04.03.1936
Neðri deild: 15. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (392)

16. mál, útflutningsgjald

*Pétur Ottesen:

Ég vil aðeins þakka n. fyrir afgreiðslu málsins frá hennar hálfu og láta í ljós ánægju mína yfir því, að útlit er fyrir, að sjómenn fái í þessu efni leiðrétting sinna mála, svo að þeir þurfi ekki framvegis að greiða hærri toll til ríkissjóðs af þessari framleiðslu sinni en 10 kr. á smálest, sem virðist vera meira en nóg eftir því útliti að dæma, sem er um verð á fiskbeinum um þessar mundir.