06.04.1936
Efri deild: 44. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (590)
102. mál, alþýðutryggingar
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Þær gr., sem í frv. þessu er lagt til, að frestað verði, hljóða þannig:
„Heimilt skal þó hverjum embættismanni eða barnakennara, sem yngri er en 10 ára, þegar lög þessa taka gildi, að hætta iðgjaldagreiðslum til hlutaðeigandi lífeyrissjóðs, og er hann þá tryggingarskyldur hjá lífeyrissjóði Íslands. Embættismaður eða barnakennari, sem notar heimild þessa skal fá endurgreidd iðgjöld sín úr hlutaðeigandi sjóði, án vaxta.
Þeir embættismenn og barnakennarar, sem stöðu fá eftir að lög þessi öðlast gildi, eru tryggingarskyldir hjá lífeyrissjóði Íslands. Þó er þeim, sem stöðu fær síðar, heimilt að losna við tryggingarskylduna, með því að greiða iðgjöld til hinna sérstöku lífeyrissjóða, enda sé hann ekki yngri en 40 ára. þegar lög þessi öðlast gildi.“
Síðan l. um alþýðutrygingar voru afgr. á síðsta þingi, hefi ég fengið tilmæli frá nokkuð mörgum barnakennurum og embættismönnum um að gangast fyrir þeirri breytingu, að lífeyrissjóður geti haldið áfram að starfa sem áður, með skyldutryggingum þeirra, sem tryggingarnar áttu að ná til. Ég var á móti því, að gerð yrði breyting á l., áður en þau gengu í gildi, en það var ekki fyrr en 1. þ. m. — einkum með tilliti til þess, að séð er, að þegar á næsta ári verður áreiðanlega ástæða til að taka eitt og annað í l. til endurskoðunar. En margir þessara manna óska þess, að lífeyrissjóður haldi áfram að starfa sem hingað til. Þá er og auðséð, að óheppilegt væri á þessu millibilsástandi að heimila fjölda manns að taka úr sjóðnum iðgjöld þau, er þeir eru búnir að greiða þangað, þannig að þeir þyrftu að fara að hefja iðgjaldagreiðslur á ný.
Ég hefi hugsað mér, ef þetta gengur í gildi, að snúa mér til þessara manna og fá álit þeirra og till. Verða þær þá lagðar fyrir næsta þing nógu snemma til þess, að hægt sé að afgreiða þær.
Með þessu frv. er lagt til, að frestað verði um eitt ár gildistöku lagagr., sem að þeim tíma liðnum verður þá ef til vill búið að breyta.
Ég skal bæta því hér við, að við athugun á því, hve margir menn þarna komi til greina og hve miklar fjárhæðir geti verið um að ræða, hefir komið í ljós, að jafnframt þeirri kvöð að greiða þetta fé úr sjóðunum er nauðsynlegt að setja nokkur ákvæði um það, hve freklega sé hægt að ganga eftir þessu fé, til að fyrirbyggja það, að menn, í trausti þess, að þeir eigi þarna svo og svo mikið fé í vændum, geri ráðstafanir, sem þeir geta svo ef til vill ekki risið undir.
Ég hefi farið fram á það við þingflokkana, að þeir geri sitt til að málinu verði hraðað gegnum þingið með afbrigðum, þannig að því geti orðið lokið í dag og að það geti fengið staðfestingu konungs á morgun.