06.03.1936
Efri deild: 17. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (653)

19. mál, eyðing svartbaks

Jón Auðunn Jónsson:

Ég hefi leyft mér að koma fram með brtt. um það, að færa tölu þeirra, sem þurfi til að óska samþykkta, úr 10 niður í 5. Það stendur sem sé þannig á, að í sumum sýslum eru ekki nema 5 eða ef til vill færri varpeigendur. Það er þannig í NorðurÍsafjarðarsýslu, og hefir sú sýsla þó verið með dúntekjumeiri sýslunum. Ég óska því, að hv. d. samþ., að þessi tala sé færð þetta niður, eins og fram á er farið með till.