17.04.1936
Efri deild: 50. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (697)
19. mál, eyðing svartbaks
Forseti (EÁrna):
Mér hefir borizt svo hljóðandi skrifl. brtt. við frv. til l. um eyðingu svartbaks frá hv. 4. landsk.:
„Við 3. gr. 3 eftir orðunum „gildandi lög eða reglugerðir“ komi: eða heimilar ómannúðlegar eyðingaraðferðir.“
Þar sem till. þessi er borin fram nú á fundinum og er skrifleg þarf um hana tvennskonar afbrigði frá þingsköpum.