02.04.1936
Efri deild: 40. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

93. mál, Menningarsjóður

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég leyfi mér að æskja þess, að þetta mál verði tekið af dagskrá. Málið hefir verið sent fjvn. til umsagnar, en hún hefir ekki enn afgr. það, en mun gera það að ég hygg nú í kvöld. Tel ég því rétt og sjálfsagt, að málið sé að þessu sinni tekið af dagskrá.