20.02.1936
Neðri deild: 4. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (964)

6. mál, lax- og silungsveiði

Pétur Ottesen:

Ég vil leyfa mér að bera fram þau tilmæli, að frv. þessu verði vísað til n., því að svo er mál með vexti, að á þingmálafundum, sem ég hélt í Borgarfjarðarsýslu í vetur, var hreyft ýmsum atriðum, sem snerta þetta mál og ég vildi því fá tækifæri til að ræða um við meðnm. mína í landbn., áður en frv. kemur til umr. næst. Af þessum ástæðum vildi ég mælast til þess, að frv. fengi að ganga til n., enda hafði hv. flm. ekkert við það að athuga.