07.04.1937
Neðri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (1131)

61. mál, endurbyggingar á sveitabýlum

*Frsm. meiri hl. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vil benda hv. þm. A.-Húnv. á, að svo áliðið er orðið þings, að um frv., sem ætti að ganga í gegn og nú fyrst er að koma í n., mætti enginn ágreiningur vera. Og þó að ágreiningurinn sé ekki nema um eitt atriði, um það, hvort veita skuli skattfrelsi af verðbréfum, þá er sá ágreiningur mikill og líkur til, að hann myndi verða málinu að fótakefli.