20.04.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)

Þingrof

*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Út af fyrirspurnum hv. þm. G.-K. vil ég taka það fram, að ég tel, að sá boðskapur, sem hæstv. forsrh. hefir að flytja þingheimi innan skamms, sé fullt svar við þeirri yfirlýsingu, sem ég gaf f. h. Alþfl. 16. þ. m.