30.03.1937
Neðri deild: 27. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (1330)
51. mál, skemmtanaskattur
*Frsm. (Sigurður Einarsson):
Það þarf ekki langa framsögu fyrir nál. okkar, því að það var samkomulag í n. milli þeirra nm., sem voru á fundi, en einn nm. gat ekki mætt, um að mæla með því, að þetta frv. yrði látið ná fram að ganga, og lágu til þess þær orsakir, að n. sá sér ekki annað fært en að mæla með málinu eins og sakir standa.
Það var enginn ágreiningur milli þeirra 4 manna, sem fundinn sátu, um að mæla eindregið með frv.