22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í C-deild Alþingistíðinda. (1352)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

*Héðinn Valdimarsson:

Ég vil leyfa mér að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hvort frv. til laga um skiptameðferð Kveldúlfs verður tekið til umr. á morgun, eins og hann hefir áður lofað mér. Hann hefir skýrt mér frá, að útvarpsumr. yrðu um málið, þar sem Alþfl. hefir óskað þess og hinir flokkarnir ekkert haft við það að athuga.