24.03.1937
Neðri deild: 26. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í C-deild Alþingistíðinda. (1385)

82. mál, skiptameðferð á búi h/f Kveldúlfs

Stefán Jóh. Stefánsson:

Hæstv. forseti hefir sýnt mér þá velvild, að gefa mér kost á, þar sem hér hafa frammi fyrir öllum landslýð verið bornar á mig rangar sakir, að leiðrétta það. Ég lýsi það hér með sem uppspuna frá rótum, að ég hafi ætlað að taka 100 þús. kr. fyrir lán, er ég hafi ætlað að útvega fyrir ríkisstj., og það hlýtur að vera vísvitandi uppspuni.