18.02.1937
Neðri deild: 4. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (1443)

17. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

Forseti (JörB). Hæstv. atvmrh. mun hafa ætlað sér að mæla fyrir þessu máli, en þar eð mér hafa engar fregnir borizt um, að hann æski þess, að málið verði ekki tekið fyrir á þessum fundi og vísað til n., vil ég leyfa mér að taka það hér fyrir, og vænti ég þess, að hv. þm. hafi ekkert á móti því, að málinu verði vísað til 2. umr. Get ég heitið því, að við 2. umr. skal verða tillit tekið til þess, að málið hafi ekki verið rætt við þessa.