05.04.1937
Efri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (181)

13. mál, Kreppulánasjóður

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Eins og ég tók fram, getum við meirihl.menn n. ekki gengið inn á till. á þskj. 157, og að því leyti mun það enga þýðingu hafa, hvort málinu er frestað eða ekki. Ég tók svo eftir, að hv. 4. þm. Reykv. segði, að hæstv. ráðh. væri veikur í dag. Veit hann nema ráðh. verði líka veikur á morgun? En ef málið dregst ekki lengur en til morguns, mun meiri hl. ekkert hafa við það að athuga.