19.04.1937
Neðri deild: 43. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (1846)

93. mál, hraðfrysting fisks

Finnur Jónsson:

Ég ætla ekki að halda ræðu, en ég álít rétt að gera grein fyrir atkv. mínu, ekki sízt þar sem ég ætlaði að koma með brtt., sem ekki er nú tími til að koma með hér. Þar sem ég álít ekki nægilega vel séð fyrir þessu máli í þeirri þáltill., sem hér liggur fyrir, mun ég athuga, hvort ekki verður hægt að koma brtt., sem ég hafði hugsað mér að koma með, fram í hv. Ed. Ég greiði því atkv. með málinu út úr hv. d. og segi já.