07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í C-deild Alþingistíðinda. (2051)

44. mál, drykkjumannahæli

Guðrún Lárusdóttir:

Þann 3. marz, eða fyrir meira en mánuði síðan, var borið hér fram frv. um drykkjumannahæli og því vísað til nefndar. Þetta mál hefir ekki komið frá nefndinni ennþá, og því vil ég leyfa mér að spyrja formann n., hvað líði þessu mikla nauðsynjamáli.