07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í C-deild Alþingistíðinda. (2052)

44. mál, drykkjumannahæli

Sigurjón Á. Ólafsson:

Nefndin hefir athugað þetta mál gaumgæfilega og átt tal um það við sérfróða menn og aflað sér ýmsra upplýsinga. En n. hefir talið þýðingarlaust að skila áliti um málið, nema veitt væri fé í þessu skyni í fjárl., en eins og kunnugt er, virðist ólíklegt, að þau verði afgr. á þessu þingi. Þetta er ástæðan, en ekki neinn óvilji til málsins.