19.03.1937
Efri deild: 22. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í C-deild Alþingistíðinda. (2083)
66. mál, húsmæðrafræðsla
*Flm. (Páll Hermannsson):
Út af því, sem hv. þm. Dal. minntist á fyrirkomulag á stjórn skólanna og verksvið skólaráðs, þá skal ég taka það fram, að ég tel, að vel geti komið til mála að lagfæra þau ákvæði eitthvað frá því, sem þau eru í frv., og mun ég benda n. þeirri, sem málið fær til meðferðar, á að athuga þetta.
Það er vitanlega alveg rétt, sem hæstv. atvmrh. benti á, að frv. þetta nær aðeins til húsmæðrafræðslu í sveitum. Að við flm. höfðum það ekki víðtækara, var fyrst og fremst sökum þess, að til þess að byrja með fannst okkur þetta nóg viðfangsefni, og ennfremur var það, að við þóttumst færari um að gera till. um húsmæðrafræðslu sveitanna út af fyrir sig en að taka húsmæðrafræðsluna alla í einni heild til meðferðar.
Annars er okkur að sjálfsögðu kunnugt um það, að húsmæðrafræðsla kaupstaðanna þarf líka endurbóta við, og til sönnunar því skal ég getu þess her, að innan skamms mun von á þál. um húsmæðrafræðslu kaupstaðanna.