07.04.1937
Efri deild: 33. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í C-deild Alþingistíðinda. (2152)
77. mál, sauðfjárbaðanir
Frsm. (Páll Hermannsson):
Þessu frv. var dálítið lýst hér í hv. d. við 1. umr. Það er sérstaklega fram komið vegna þess, að ekki hefir þótt fært að framkvæma þær kláðabaðanir, sem hafa verið ákveðnar. Hinsvegar þótti ótækt að reyna ekki á einhvern hátt að stemma stigu fyrir útbreiðslu fjárkláðans, auk þess sem telja verður þrifaböðunina gagnlega, þótt ekki sé um fjárkláða að ræða.
Landbn. hefir athugað frv. og mælir með því, að það verði samþ., jafnvel þótt tveir hv. nm. hafi um það einhverja sérstöðu. — Hér á fundinum hefir verið útbýtt brtt. 222 frá hv. þm. Dal. Mér var kunnugt um efni þessarar brtt., áður en hún kom fram, og get ég sagt það, að mér þykir nokkur sanngirni mæla með því, að brtt. verði samþ.