07.04.1937
Neðri deild: 32. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (218)

21. mál, meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Stefán Jóh. Stefansson):

Við 2. umr. þessa máls boðaði ég þá brtt., sem er á þskj. 116. Þar er aðeins um orðabreyt. eða málfarsbreyt. að ræða, en enga efnisbreyt. Vænti ég því, að hv. þdm. geti fallizt á, að þetta orðalag, sem stungið er upp á í brtt., sé betra heldur en í frv. sjálfu.