14.04.1937
Neðri deild: 38. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (2280)

119. mál, byggingar- og landnámssjóður

*Pétur Ottesen:

Ég vil benda hv. 2. þm. N.-M. á það, að hann þarf ekki að ómaka sig fram í lestrarsal til þess að sjá þessa klögun frá Búnaðarbankanum; hann hefir hana hér í d., þar sem hv. þm. Mýr. er. Ég veit ekki, hvernig hann fer að halda það, að þingsætið byggi mönnum út úr lífsstöðum. A. m. k. hefi ég aldrei vitað hann sjálfan færast eins mikið í fang um lífsstöður eins og einmitt eftir að hann varð þm.