15.04.1937
Sameinað þing: 10. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (2325)
46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.
Ólafur Thors:
Ég álít tilgangslaust að tala um þetta meira. En ég veit, að allir hv. þm. viðurkenna, að það hefði verið til hins verra, ef hægt hefði verið með nokkru móti að bera Íslendingum það á brýn, að þeir nú í dag hefðu hopað aftur á bak frá sínum fyrri ákvörðunum í þessum efnum. A. m. k. er orðalag þáltill. þannig, að það gæti valdið því, að þáltill. yrði tekin svo, að með henni væri gefið til kynna, að við Íslendingar ætluðum ekki að taka önnur mál í okkar hendur 1943 en utanríkismálin. Og hvort sem það er talin þörf, að Sjálfstfl. kom fram með þessa brtt., af þeirri ástæðu, að afstaða annara fl. á Alþ. væri ókunn, eða ekki þörf, þá er það vel farið, að hún kom fram, því vegna þess að þessi brtt. Sjálfstfl. kom fram, hefir öðrum fl. gefizt tilefni til að kveða skýrar á um, hvað þeir vilji í þessu máli heldur en fram kom í þáltill. á þskj. 46.
Út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði í sambandi við afstöðu Sjálfstfl. til æðstu stjórnar landsins, þegar búið er að hagnýta uppsagnarákvæði sambandslagasamningsins, þá vil ég lýsa því yfir, að honum var í lófa lagið á utanríkismálanefndarfundi að knýja fram einhverja yfirlýsingu í þeim efnum. þar var aðeins minnzt á þetta stuttlega og því lýst yfir, að það mál væri þessu máli óskylt. Sambandslagasamningurinn fjallar ekki um konungssambandið, og við höfum enga leið til þess að losna við konunginn á annan veg en með uppreisn eða á þann hátt að banna okkar konungi, eftir að málefnaskilnaður hefir orðið á milli Dana og Íslendinga, að vera konungur í öðrum ríkjum.
En það mál er þessu máli alveg óskylt. Enda hefir þessi hv. þm. hvorki látið uppi sína skoðun né Alþfl. í þeim efnum, né heldur reynt að knýja fram álit annara flokka við umræður í utanríkismálanefnd.