15.04.1937
Sameinað þing: 10. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í D-deild Alþingistíðinda. (2330)

46. mál, meðferð utanríkismála o. fl.

Ólafur Thors:

Ég vil leyfa mér að beina því til hæstv. forseta, hvort ekki þyki rétt að fresta atkvgr. og taka málið út af dagskrá, til þess að Alþfl. gefist færi að koma með brtt., svo Alþingi fái tækifæri til að lýsa yfir því, sem rétt þykir viðvíkjandi konungssambandinu.