17.04.1937
Sameinað þing: 11. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (2375)

45. mál, sjávarágangur í Vestmannaeyjum

*Frsm. (Pétur Ottesen):

Út af því, sem hv. 9. landsk. sagði um það, að ég hefði vitnað í heimildir hér, og í því sambandi gat þess, að fjvn. hefði borizt bréf frá hv. 3. landsk., vildi ég leiðrétta það hjá hv. þm. Fjvn. hefir ekki borizt neitt bréf frá honum. Með þessu bréfi fra atvmrh., sem ég vitnaði í, var sent bréf frá vitamálastjóra, sem er svar við bréfi um þetta efni til atvmrh. út af bréfi, sem hv. 3. landsk. hafði sent því um þetta efni. Þannig eru þessi gögn komin í hendur fjvn., sem ég vitnaði í og gat atvmrh. í sambandi við.