19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (2414)

138. mál, brunaslys í Keflavík

Forseti (JBald):

Út af orðum hv. þm. Barð. til forseta vil ég segja það, að ég tel, að forseta beri skylda til, þegar komið er út í slíkar umr., sem fram fóru áðan milli hv. þm. Barð. og hv. 9. landsk., að slíta þeim. Þeir höfðu báðir talað tvisvar í málinu og umr. var lokið.