19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í D-deild Alþingistíðinda. (2486)

85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.

*Frsm. minni hl. (Sigurður Einarsson):

Ég þakka hæstv. forseta. En ég verð að segja það eins og það er, að ég álít það ósamboðið að fara að lýsa því yfir, hvernig skuldaskiptum mínum við bankana kann að vera komið. Ég hefi ekki haft geð í mér til þess að ganga hér milli borða í þinginu til þess að biðja mér griða í mínum fjármálum, og ég hefi ekki heldur átt að ráðh., sem hefir haldið hlífiskildi yfir mér á þann hátt sem haldið hefir verið yfir þessum hv. þm.