20.04.1937
Sameinað þing: 13. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (2496)

162. mál, dánarbætur o. fl.

*Héðinn Valdimarsson:

Í frv. því, sem liggur fyrir um breyt. á tryggingarl., er brtt., sem fjallar um þetta efni, en hún nær ekki fram að ganga á þessu þingi, svo að ég geti verið með þessari þáltill., að því leyti sem ég hygg, að hún geti náð þessum tilgangi, en ég held, að það sé ekki hægt að breyta lögum með þáltill., þannig að hægt sé að greiða dánarbætur samkv. þessari þáltill., þó að lögin segi annað; það tel ég vafasamt.