01.03.1937
Sameinað þing: 4. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í D-deild Alþingistíðinda. (2564)

40. mál, síldarverksmiðjan á Norðfirði

Flm. (Jónas Guðmundsson):

Ég neita því algerlega, að þetta fyrirtæki hafi ekki fram til þess, að óáran hefti svo mjög viðgang þess, sýnt fullkominn lit á því, að standa í ístaðinu, eins og unnt hefir verið. Hv. þm. vita það, eða ættu að vita, að það ástand, sem skapazt hefir undanfarin ár fyrir sjávarútveginn á Austurlandi, hefir látið ríkissjóði blæða á öðrum stöðum meira en ennþá hefir komið fyrir í þessu tilfelli.