13.04.1937
Neðri deild: 37. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (258)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Jóhann Jósefsson:

Þetta frv. var afgr. frá n., þ. e. a. s. frá minni hl. n., og lýst afstöðu annara nm. Ég vil aðeins stuttlega segja frá því, að við hv. 6. þm. Reykv. viljum ekki samþ. frv. og álítum, að það eigi ekki fram að ganga. Af því að afstaða okkar í þessu máli er alveg hrein og tvímælalaus, töldum við ekki ástæðu til að gefa út sérstakt nál., en ég vildi láta þess getið við þessa umr., að við 6. þm. Reykv. álítum, að þetta mál eigi ekki fram að ganga.