15.04.1937
Neðri deild: 39. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

14. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Gísli Guðmundsson:

Ég vil aðeins vekja athygli hv. þm. G.-K. á því, að þó að þessi till. yrði samþ. eins og hún liggur fyrir, þá breytir hún ekki viðhorfinu að öðru leyti en því, að nýju lögin, hvenær sem þau yrðu samþ., geta ekki komið í gildi fyrr en 1. jan. 1938, og ég hefi gert grein fyrir því í minni framsöguræðu, hvers vegna ég tel óheppilegt að skipta um stj. síldarverksmiðjanna á miðju ári, nema sérstakar ástæður séu fyrir því.